Leigðu tæki fyrir verkefnið þitt

Dags- og helgarleiga á fjórhjólum og buggy-bílum. Hvort sem er fyrir ævintýri helgarinnar eða verkefni sem þarf að klára.

Leigðu fjórhjól

Viltu fjórhjól á leigu?

Létt og öflugt, fyrir einn ökumann og einn farþega. Kemst nánast hvert sem er og hentar vel bæði í frístundir og vinnu, til dæmis til að flytja verkfæri og efni.

Þú sækir hjólið til okkar, við förum yfir helstu öryggisatriði og svo hefurðu það til umráða allan leigutímann.

Verð: 39.000 kr. á dag.

Hafa samband

Leigðu buggy-bíl

Viltu buggy-bíl á leigu?

Góður buggy-bíll hentar vel í bústaðarferð eða önnur verkefni.

Allir bílar okkar eru fjögurra sæta, með öryggisbeltum og veltigrind. Þeir eru þægilegri og stöðugri en fjórhjól. Henta vel fyrir pör og vini sem vilja ferðast saman og fyrir þá sem kjósa að keyra eins og í bíl.

Verð: 69.000 kr. á dag

Hafa samband

Hvernig á að bóka

Sendir tölvupóst

Fyrsta skrefið er að senda okkur tölvupóst þar sem þú segir okkur hvaða daga og hvaða tæki þú vilt leigja.

Tilboð

Við svörum þér og gerum þér tilboð í leiguna.

Greiðsla

Þegar leigan hefur verið bókuð sendum við þér staðfestingu ásamt greiðsluleiðbeiningum.

Leigan sjálf

Þú sækir tækið og búnaðinn til okkar. Þegar leigutímanum lýkur skilar þú öllu aftur til okkar.

Skilmálar

  • Lágmarksaldur ökumanns: 17 ár.
  • Gilt ökuskírteini.
  • Trygging að upphæð 250.000 kr. er greidd við leigu og endurgreidd þegar tækinu er skilað.
  • Leigutaki ber ábyrgð á öllu tjóni á tækjum og búnaði á leigutímanum.
  • Aðeins má aka á vegum og merktum slóðum. Utanvegaakstur er bannaður samkvæmt lögum.
  • Lágmarksleiga er tveir dagar. Hægt er að fá tilboð fyrir lengri leigutíma.
  • Tækin eru með fullan bensíntank þegar þú sækir þau og þeim þarf að skila með fullan tank. Aukagjald er innheimt ef bensín vantar á tæki.
  • Skola þarf tækin áður en þeim er skilað. Þrifagjald gæti bæst við ef þeim er skilað óhreinum.
Hafa samband

Langar þig að leigja tæki?

Hafðu samband við okkur í dag.

Vantar þig lengri leigutíma? Hafðu samband og láttu okkur vita hvert verkefnið er. Við getum þá gert þér tilboð.

Hafa samband